Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að hækka meginvexti úr 7,25 í 7,5 prósent. Einhugur ríkti innan peningastefnunefndarinnar að vaxtahækkun væri skrefið sem þyrfti að taka; þrír töldu þetta nóg, tveir vildu herða skrúfstykkið enn frekar. ÓLÍKLEGT AÐ VERÐBÓLGA HJAÐNI Í NÆSTU MÆLINGU Það ræðst á næstu 167 dögum hvort forsendur kjarasamninga haldist, mælist verðbólgan yfir 4,7 prósentum 1. september opnast heimild til að segja þeim upp. Verðbólga nú mælist 5,2 prósent og ólíklegt að hún hjaðni í næstu mælingu.Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær lagði fjármálaráðherra til að mynda fram minnisblað þar sem kemur fram að stríðið í Mið-Austurlöndum hafi skapað aukna óvissu um efnahagshorfur á næstunni, efnahagsleg áhrif átakanna gætu verið meiri og víðtækari en tollasetning Banda