Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Berglind leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Múlaþingi

Berglind Harpa Svavarsdóttir, formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og varaþingmaður í Norðausturkjördæmi, leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi í sveitarstjórnarkosningunum í vor.Í öðru sæti listans er Þórhildur Katrín Stefánsdóttir og í því þriðja Ívar Karl Hafliðason. Fjórða sæti skipar Oddný Björk Daníelsdóttir.Framboðslisti flokksins var samþykktur í heild sinni af fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í gær. Kosið var í efstu fjögur sæti listans í lok febrúar og á fundi gærdagsins lagði kjörnefnd fram tillögu að skipan listans að öðru leyti sem hlaut samhljóða samþykki.Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 29,2% atkvæða í sveitarstjórnarkosningum árið 2022 og þrjá kjörna fulltrúa í sveitarstjórn Múlaþings.
Berglind leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Múlaþingi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta