Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka

Matvöruverð hefur hækkað meira á fyrstu þremur mánuðum ársins en í byrjun síðasta árs. Í tilkynningu Alþýðusambands Íslands (ASÍ) segir að vörukarfa verðlagseftirlits hafi hækkað um 0,68% milli febrúar og mars þessa árs.Mánaðarhækkunin er þvert á vöruflokka. Mestu munar um unnar kjöt- og mjólkurvörur en sælgæti og aðrar dýraafurðir hækka einnig.Appelsínur og fleiri ávextir lækka hins vegar í verði milli mánaða, sem og sveppir, rótarhnýði og laukur.Mestu verðhækkanirnar það sem af er ári mælast í Fjarðarkaupum (3,0%), Nettó (2,3%) og Bónus (2,0%). Í tilkynningu ASÍ er þó gerður fyrirvari með mælingar í Fjarðarkaupum þar sem tölur fyrir marsmánuð liggja ekki fyrir.Vöruverð í Extra jókst mest milli febrúar og mars, eða um 7,6% en hækkunina má að mestu skýra í ljósi mikillar verðlækkunar versl
Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta