Holtavörðuheiði, Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi verður lokað á miðnætti í kvöld. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum og búið er að gefa út gular viðvaranir vegna illviðris víða um landið næstu daga.Vegagerðin varar við mögulegri snjóflóðahættu á Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarmúla síðar í kvöld. Víða er snjóþekja og hálka á vegum.Talsverð ofankoma og skafrenningur hefur verið á Tröllaskaga og Vestfjörðum undanfarna daga í norðlægum áttum og hafa nokkur snjóflóð fallið, meðal annars á vegi.Hægt er að fylgjast með færð á vegum á Umferðin.is.