Ísland er níunda ríkið sem undirritar yfirlýsingu um samstarf í varnar- og öryggismálum við Evrópusambandið. Noregur, Kanada og Bretland hafa undirritað sambærilegar yfirlýsingar – en þær eru þó alls ekki allar eins.Í yfirlýsingunni sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, undirrituðu í dag er tilgreint að Ísland fái aukinn aðgang að varnarkerfum og varnariðnaði Evrópusambandsins. Þetta er fyrsta skref í að tengja Ísland við varnariðnað ESB, þrátt fyrir að vera ekki aðildarríki. Í viðtali við Björn Malmquist sagði Þorgerður Katrín þetta þýddi að íslenskur iðnaður hefði aðgang að þessum markaði innan Evrópusambandsins. Íslensk nýsköpun ætti þarna tækifæri og íslensk fyrirtæki gætu þróað vörur og varnir til að styrkja seiglu og viðnámsþol