Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Umfangsmikil rannsókn á hópárás í bílakjallara

Rannsókn lögreglu á lífshættulegri líkamsárás í Túnunum í Reykjavík á mánudag er umfangsmikil en miðar ágætlega, að sögn lögreglu. Fimm eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa ráðist að þremur mönnum. Einn er enn á gjörgæslu.Árásin var gerð í bílakjallara í Borgartúni.„Rannsóknin er í fullum gangi,“ segir Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Henni miðar ágætlega en hún er umfangsmikil.“Sá sem liggur á sjúkrahúsi sé með þónokkra áverka.Lögregla vill lítið gefa upp um rannsóknina að svo stöddu. Vísir hermir að eggvopni og kylfum hafi verið beitt. Aðspurður hvort vopni hefði verið beitt sagði Ævar Pálmi það vera til rannsóknar.Sjö voru handteknir í tengslum við árásina aðfaranótt þriðjudags. Fjórir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags
Umfangsmikil rannsókn á hópárás í bílakjallara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta