Þjónustusvæði rafskútuleigunnar Hopp heldur áfram að vaxa og nýverið samþykkti sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar erindi þess efnis að þjónustan nái til Hrafnagilshverfis, um tíu kílómetra sunnan við Akureyri.Á Hrafnagili búa 398 manns og er þetta því fámennasti byggðakjarni landsins sem nýtur þjónustu Hopp. Samkvæmt upplýsingum frá Hopp er drægni fullhlaðinna rafskúta um 40 kílómetrar og því ætti að vera auðvelt að koma sér frá miðbæ Akureyrar í Jólahúsið og til baka í sömu ferðinni.Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar lýsir „jákvæðni gagnvart því að kanna möguleika á aukinni fjölbreytni í samgöngum milli Hrafnagilshverfis og Akureyrar með slíkri þjónustu,“ í fundargerð um málið. Búast má við því þegar vora tekur að íbúar og ferðamenn geti farið að nýta sér þjónustu Hopp til þess að komast á mi