Þingmenn stjórnarandstöðunnar, aðallega Sjálfstæðisflokks, kröfðust þess við upphaf þingfundar að forseti þingsins beitti sér fyrir því að ríkisstjórnin fresti því að greiða atkvæði um frumvarp félagsmálaráðherra um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu.Þriðju og síðustu umræðu um frumvarpið lauk í gær og að óbreyttu verður það að lögum eftir atkvæðagreiðslu á morgun. Stjórnarandstaðan, auk hagfræðinga, aðila vinnumarkaðarins, Seðlabankans og fleiri, hefur gagnrýnt frumvarpið þar sem það felur í sér umtalsverðan kostnað fyrir ríkissjóð.Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, kvaddi sér hljóðs í upphafi þingfundar, undir liðnum fundarstjórn forseta, til að ræða efnahagsmál og sagði í ljósi stýrivaxtahækkunar í morgun væri umhugsunarvert að greiða ætti atkvæði um