Lögreglan á Vestfjörðum ætlar að grípa til lokana við Látrabjarg ef fjöldi ferðamanna fer yfir ákveðin mörk við sólmyrkvann í ágúst. Á Vesturlandi er líka verið að undirbúa umferðarstýringu og í Snæfellsjökulsþjóðgarði er búið að kortleggja hvar gera má ráð fyrir að álagið verði sem mest.Undirbúningur fyrir sólmyrkvann hófst fyrir þremur árum hjá Markaðsstofu Vestfjarða, þegar fundað var með sveitarfélögum á Vestfjörðum. Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofunnar, bendir á að ferðamenn og ferðaþjónustur hafi byrjað að skipuleggja ferðir sínar fyrir nokkrum árum. „Hér er gisting löngu uppbókuð, örugglega fyrir tveimur árum síðan,“ segir Sölvi. Hvers vegna er þessi almyrkvi svona mikið mál? Sólmyrkvi verður þegar tunglið skyggir á sólina svo rökkur verður á jörðinni. Algengast er að t