Rannsóknarnefnd sem skipuð verður til að rannsaka Bakkakotsmálið mun að öllum líkindum einnig skoða fósturheimili hér á landi með heildstæðum hætti. Þetta segir Páll Þórhallsson, lögfræðingur og skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu. Páll hefur umsjón með viðbrögðum ráðuneytisins við Bakkakotsmálinu.Páll segir um rannsóknarnefndina um Bakkakot í viðtali við fréttastofu: ,,Forsætisráðherra hefur í hyggju að leggja fram frumvarp seinna á þessu þingi, fyrir sumarið, þar sem komið yrði á laggirnar rannsóknarnefnd til að fjalla um fósturráðstafanir, eftirlit með þeim og Bakkakot sérstaklega. Það á eftir að afmarka nákvæmlega hvert verður viðfangsefnið. Tilefnið er auðvitað þetta Bakkakotsmál. En það er líklegt að það verði fleira undir, til dæmis í því formi að slík nefnd gæti tekið við ábendi