Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hækkun stýrivaxta eðlilegt skref en ekki góðar fréttir

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir það hafa verið eðlilegt skref hjá Seðlabankanum að hækka stýrivexti um 0,25%. Það séu hins vegar ekki góðar fréttir. Aðgerðir stjórnvalda, sem von er á til að bregðast við versnandi efnahagsástandi, verða í fjármálaáætlun sem birt verður í næstu viku.„Aðhaldsstigið mun aukast verulega. Það hefur verið vinnan okkar í vor, að bregðast við þessum verðbólgumælingum sem við höfum verið að fá og herða ennþá tökin þannig ríkið styðji ennþá betur við peningastefnu Seðlabankans,“ segir Daði Már.Þrátt fyrir orð seðlabankastjóra um að breytingu stýrivaxta mætti rekja til hækkunar á opinberum gjöldum vildi Daði ekki taka undir þá túlkun að ríkið bæri ábyrgð á hækkun. „Breytingar á gjöldum hins opinbera styðja verkefni Seðlabankans.“
Hækkun stýrivaxta eðlilegt skref en ekki góðar fréttir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta