Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna konu sem slasaðist á Landmannaleið á Suðurlandi rétt fyrir klukkan tvö.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi hjá Landhelgisgæslunni, segir að björgunarsveitir á svæðinu hafi einnig verið kallaðar til. Þegar fyrstu viðbragðsaðilar hafi mætt á svæðið hafi verið talin þörf á að kalla til þyrlu gæslunnar vegna sjúkraflutninga.Frekari upplýsingar um meiðsl konunnar og líðan hennar liggja ekki fyrir að svo stöddu segir Ásgeir.Þyrla Landhelgisgæslunnar.Heilbrigðisráðuneytið