Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran

Sænskur ríkisborgari var tekinn af lífi í Íran í dag. Frá þessu greinir sænska utanríkisráðuneytið. Maðurinn var handtekinn í júní í fyrra. Íranskir miðlar segja hann hafa verið grunaðan um njósnir og að hann hafi deilt myndefni með ísraelsku leyniþjónustunni Mossad, að því er segir í frétt Aftonbladet.„Það er augljóst að málsmeðferð sem leiddi til aftöku sænsks ríkisborgara hafi ekki verið í samræmi við lög,“ segir í yfirlýsingu Mariu Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar.Stenergard segir sænsk stjórnvöld ítrekað hafa tekið málið upp við fulltrúa stjórnvalda í Íran frá því að maðurinn var handtekinn. „Í þessum samskiptum höfum við lagt áherslu á væntingar Svía í þá veru að maðurinn fái sanngjörn réttarhöld og að hann verði ekki dæmdur til dauða,“ segir í yfirlýsingu ráðherrans.Í
Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta