Árásir voru gerðar á eitt stærsta gassvæði heimsins í Íran í dag. Svæði þetta kallast Pars-gassvæðið og deila Íranir því með Katörum, hinum megin við Persaflóa. Ráðamenn í Katar hafa sakað Ísraela um árásirnar í dag en myndefni af vettvangi gefur til kynna að margir gaspallar standi í ljósum logum.