Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Áföll í móðurkviði geti haft lífstíðaráhrif á heilsu

Verði barnshafandi kona fyrir miklu álagi eða áföllum getur það haft víðtæk og langvarandi áhrif á barnið að sögn Graham Music, bresks sérfræðings í áhrifum áfalla á þroska barna. Meðganga segir hann að geti slegið tóninn fyrir alla ævi viðkomandi.Music var til viðtals í Kastljósi í gærkvöldi.Breskur sérfræðingur í þroskasálfræði segir áföll geta haft alvarleg áhrif á fósturþroska barna. Að sama skapi geti erfið reynsla í æsku haft áhrif á hættulega sjúkdóma síðar á ævinni.Music segir að áföll geti haft áhrif á fósturþroska barna með þeim afleiðingum að aukin hætta verður á fyrirburafæðingum og lágri fæðingarþyngd. Áhrif sem fylgi fólki út lífið. Hann nefnir sem dæmi að börn mæðra sem voru vannærðar á meðgöngu hafi þróað með sér sparefnaskipti sem gera fólki auðveldara að þyngjast. Áhrifan
Áföll í móðurkviði geti haft lífstíðaráhrif á heilsu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta