Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir manndráp vegna andláts karlmanns á fertugsaldri í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í nóvember. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, héraðssaksóknari.Gæsluvarðhald hefur verið framlengt um fjórar vikur. Sakborningurinn, sem er af grískum uppruna, er ákærður fyrir að hafa veist með ofbeldi að öðrum manni og svipt hann lífi.Ákærða er gert að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.Héraðssaksóknari gaf út ákæruna í dag og verður málið tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness.Hinn látni lætur eftir sig tvö ung börn. Farið er fram á miskabætur fyrir þeirra hönd vegna dauða föður þeirra, annars vegar 9,6 milljónir og hins vegar