Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kaja Kallas utanríkismálastjóri Evrópusambandsins skrifuðu í dag undir yfirlýsingu um samstarf Íslands og Evrópusambandsins í varnar- og öryggismálum.Níu ríki hafa þegar staðfest yfirlýsingu af þessu tagi, þar á meðal Noregur, Kanada og Bretland. Óvissutímar í alþjóðamálum kalla á aukið samstarf vinveittra ríkja, sagði Kallas á fundi í Evrópuþinginu í gær.Fyrsti fundur Þorgerðar Katrínar í dag var í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins þar sem Radmila Shekerinska varaframkvæmdastjóri bandalagsins tók á móti henni.Þorgerður á einnig fund með Maroš Šefčovič í dag. Hann er einn af framkvæmdastjórum Evrópusambandsins sem fer með samskiptin við EES-ríkin; Ísland, Noreg og Lichtenstein.