Heimilisúrgangur dróst nokkuð saman milli áranna 2023 og 2024 samkvæmt tölfræði sem Umhverfis- og orkustofnun birti í dag. Samdrátturinn er mun meiri ef litið er til fólksfjölgunar. Landsmenn hentu samtals 216.800 tonnum af heimilisúrgangi 2024, það er tæplega sjö þúsund tonnum minna en árið áður og sex þúsund tonnum minna en 2022. Í þessum tölum er bæði að finna heimilisúrgang frá heimilum og sambærilegan úrgang frá fyrirtækjum.Þegar úrganginum er deilt niður á landsmenn verður samdrátturinn enn meira áberandi því landsmönnum fjölgaði um 19 þúsund á þessum tveimur árum. Hver landsmaður henti að meðaltali 610 kílóum af heimilisúrgangi 2022, 596 kílóum 2023 og 565 kílóum 2024.Söfnun lífræns úrgangs þrefaldaðist milli áranna 2023 og 2024. Á sama tíma minnkaði blandaður úrgangur um fimmtung.