„Barnið í mér vill mikið drama og mikið flipp, það vill gráta upphátt og fá hláturskast. Þannig finnst mér gaman að vinna,“ segir Agnar Jón Egilsson sem leikstýrir verkinu Mömmó eftir hinn rómaða leikhöfund Paulu Vogel. Hún hefur óhikað tekið fyrir flókin félagsleg og pólitísk mál og sló í gegn hér á landi og víðar með leikriti sínu Ökutímar.Verkið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu fyrir helgi og er sjálfsævisöguleg fjölskyldusaga sem fjallar um konu sem reynir að lifa af í erfiðu samfélagi. Melkorka Ólafsdóttir ræddi við Agnar í Víðsjá á Rás 1. SKRIFAR VERK UM ÞAÐ SEM ER ERFITT AÐ TALA UM Paula Vogel hefur verið eitt vinsælasta og virtasta leikskáld Bandaríkjanna og unnið til fjölda verðlauna. Hún er mikill jafnréttissinni og hefur barist fyrir hinsegin- og kvenréttindum. Fyrir verkið Ök