Tveir voru drepnir í eldflaugaárás Írana á og nærri ísraelsku stórborginni Tel Aviv í kvöld. Björgunarsveitir og lögregla hafa brugðist við tilkynningum um skemmdir af völdum árásanna víðs vegar um borgina og nágrenni hennar.Í tilkynningu Rauðu Davíðsstjörnunnar segir að fólkið hefði fundist illa sært í stórskemmdri byggingu og verið úrskurðað látið á staðnum. Alls hafa því 14 verið drepnir í Ísrael frá upphafi stríðsins 28. febrúar. ÖFLUGUM SPRENGJUM BEINT AÐ ELDFLAUGASTÖÐ ÍRANA Yfirstjórn Bandaríkjahers kveðst hafa skotið mörgum af einhverjum öflugustu sprengjunum úr vopnabúri sínu að írönskum eldflaugastöðvum nærri Hormússundi. Íranski byltingarvörðurinn hefur nær algerlega stöðvað ferðir skipa um Hormússund, sem annar um fimmtungi allra olíuflutninga veraldar.Í yfirlýsingu hersins á