Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður birt í fyrramálið. Skiptar skoðanir eru meðal sérfræðinga á markaði um hvort Seðlabankinn hækki vexti eða haldi þeim óbreyttum.Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans búast við að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig og fari upp í sjö og hálft prósent. Arion banki spáir óbreyttum stýrivöxtum þar sem nýjustu hagtölur sýni kólnun í hagkerfinu. Konráð S. Gíslason hagfræðingur telur líklegast að vextir hækki þar sem horfa verði til kjarasamninga.„Það sem knýr þau held ég mest til þess að bregðast við er að væntingarnar hafa versnað og tíminn er svolítið hlaupinn frá þeim að ná að bregðast við til að hafa einhverja stjórn á því hver verðbólgan verður hér í ágúst þegar það kemur að endurskoðun á kjarasamningum,“ segir Konráð.