Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir fjármagn fyrir framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma vera til í ríkissjóði þótt kostnaður við uppbygginguna liggi ekki fyrir. Lengi hafi verið mikil þörf á hjúkrunarrýmum og fjármagn því verið tekið frá fyrir fjárfestingar til uppbyggingar þeirra.Þá bendir Daði Már á að sparnaður sé fólginn í uppbyggingu hjúkrunarrýma. Það létti á byrðum heilbrigðiskerfisins sem sinni í dag hluta þess fólks sem bíður eftir hjúkrunarrými og kosti ríkissjóð hærri fjárhæðir.„Varðandi reksturinn þá er það auðvitað þannig að að stórum hluta notum við í dag heilbrigðiskerfið, sjúkrahúsin, sérstaklega Landspítalann, til þess að sinna hlutverki sem raunverulega gerir honum erfiðara fyrir, er miklu mun dýrari þjónusta en sú sem hægt er að veita á þessum stofnunu