Öryggisráð Írans hefur staðfest að Ali Larijani, yfirmaður ráðsins, liggi í valnum eftir loftárás frá Ísrael. Ísraelskir fjölmiðlar greindu frá árásinni fyrr í dag. Gholamreza Soleimani, yfirmaður Basij-öryggissveitar íranskra stjórnvalda, var einnig drepinn í árásinni.Samkvæmt AFP-fréttaveitunni er Larijani háttsettasti Íraninn sem hefur verið drepinn í árásum Bandaríkjamanna og Ísraels síðan í febrúar. Öryggisráð Írans segir í tilkynningu að sonur Larijanis og lífverðir hans hafi einnig látið lífið í árásinni.Ali Larijani fór fyrir öryggisráði Írans.EPA / WAEL HAMZEH