Þegar samið var um helstu skilmála samruna Íslandsbanka og Skaga í október, meðal annars með því að festa gagngjaldið til hluthafa Skaga í tilteknum fjölda hluta, var opnað fyrir áframhaldandi kaup bankans á eigin bréfum sem hafði „óhjákvæmilega áhrif til hækkunar“ á hlutabréfaverðinu, að sögn stjórnarformanns Skaga. Hann segir það hafa verið „veruleg vonbrigði“ þegar Íslandsbanki setti fram kröfur um mikla lækkun á gagngjaldinu á grundvelli ólíkrar þróunar á markaðsvirði félaganna sem hafi ekki átt sér stoð sem ein forsenda breytinga á samkomulaginu.