Blóðug og sár dýr sem farin eru að naga sig inn að beini er á meðal þess sem sést á myndum úr loðdýrabúum hér á landi. Sár sem eru þess eðlis að aflífa ætti dýrið, til þess að lina þjáningar þess. Ljósmyndir sem teknar voru í þremur minkabúum hér á landi varpa ljósi á aðbúnað minkanna, sem lifa alla sína ævi í litlum búrum, í þeim tilgangi að ala af þeim feld, sem síðan er sendur úr landi.Myndirnar voru sýndar í Kveik í kvöld.Myndefni sem tekið var í þremur minkabúum hér á landi varpar ljósi á aðbúnað dýranna. Myndirnar sýna blóðug og sár dýr, sem sum eru farin að naga sig inn að beini vegna streitu og kvíða.„Þarna sjáum við dýr sem eru veik, sem eru slösuð, blóðug, alblóðug jafnvel, eru með meiðsli á útlimum,“ segir Rósa Líf Darradóttir, læknir og formaður Samtaka um dýravelferð.Minkarækt