Ekki er gert ráð fyrir kostnaði vegna kjarasamninga starfsfólks hjúkrunarheimila í framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma sem kynnt var í gær.Formaður Eflingar segir kostnaðinn hlaupa á hundruðum milljóna.Ráðherra segir ríkissjóð standa straum af kostnaði. MÖNNUN VERÐUR MIKIL ÁSKORUN Ríflega 1.500 ný hjúkrunarrými eiga að rísa fyrir árslok 2030, gangi ný framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma eftir.Samkvæmt áætluninni, sem Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra kynnti í gær, verður mönnun á þessum nýju rýmum gríðarstór og mikil áskorun. Hún sagði lausnina á vandanum meðal annars felast í því að hækka laun umönnunarstétta.Formaður Eflingar segir málið ekki svo einfalt. Hún fagnar þó umræðu um launahækkanir.Mönnun á 1.500 nýjum hjúkrunarrýmum verður áskorun og ráðherra vil