Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Telur að endurskoða ætti lög um loðdýrarækt

Yfirdýralæknir MAST telur að stjórnvöld ættu að endurskoða lög sem heimila loðdýrarækt hér á landi, líkt og víða hefur verið gert í Evrópu. Ljóst sé að dýrin geti ekki sýnt sitt náttúrulega eðli á meðan þau eru lokuð inni í litlum búrum. Myndir sem teknar voru á minkabúum á Íslandi varpa ljósi á aðbúnað minka, þar sem þeir sjást meðal annars sárir og blóðugir.Myndirnar, sem birtar verða í Kveik í kvöld, eru teknar af finnskum dýraverndarsinnum í október og nóvember, á þremur minkabúum af sex sem þá voru starfrækt hér á landi. Búin eru öll hætt starfsemi, af fjárhagslegum ástæðum.„Mér fannst mjög leiðinlegt að sjá þessar myndir og sérstaklega í ljósi þess að þessi bú sem nú eru reyndar hætt starfsemi, að þessi bú var farið í eftirlit ekki mjög löngu áður og það var eftirfylgni þar, á sumum
Telur að endurskoða ætti lög um loðdýrarækt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta