Þann 29. janúar síðastliðinn gaf embætti héraðssaksóknara út 60 ákærur fyrir eitt og sama hegningarlagabrotið; brot gegn valdstjórninni. Þetta er hundraðasta og sjötta grein hegningarlaga þar sem mælt er fyrir um að hver sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann, þegar hann gegnir skyldustarfi sínu, skuli sæta fangelsi. ÁTAKSVERKEFNI AÐ GEFA ÁKÆRURNAR ÚT Rétt er að taka fram að refsingin fyrir brot af þessu tagi er þó yfirleitt ekki fangelsisdómur heldur alla jafnan þrjátíu, sextíu eða níutíu daga skilorðsbundið fangelsi sem fellur niður haldi fólk sig réttu megin laganna á þeim tíma.Hér ber líka að hafa í huga að þeir sem eru ákærðir fyrir brot af þessu tagi eru oftar en ekki veikt fólk á vondum stað. Karl Ingi Vilbergsson saksóknari gaf nánast allar ákærurnar