Fjármálaráðherra segir tvísýnt hver ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um stýrivexti verður á fundi nefndarinnar í fyrramálið. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, mun í setti gera grein fyrir sinni spá um stýrivexti og fara yfir horfurnar í efnahagsmálunum. Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum.