Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið

Vegagerðin hefur hafnað tilboði Icelandair um rekstur áætlunarflugs til Ísafjarðar. Vísir greindi fyrst frá. Tilboð félagsins var upp á um 3,5 milljarða en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 1,3 milljarða. Icelandair var eina félagið sem bauð í rekstur Ísafjarðarflugsins.Innviðaráðuneytið segist fylgjast með stöðunni og að viðræður haldi áfram milli Vegagerðarinnar og Icelandair.Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir samtalið halfa áfram en að ómögulegt sé segja til um næstu skref. Félagið þurfi að nálgast viðræðurnar á ákveðnum forsendum, líkt og sveiflum á olíuverði.
Hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta