Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að Bandaríkjaher þurfi ekki lengur aðstoð annarra ríkja gegn Íran. Síðustu daga hefur hann beðið nokkur ríki um aðstoð við að tryggja öryggi skipa á leið um Hormússund sem Íranar hafa lokað. Fálega hefur verið tekið í beiðni Trumps um aðstoð á Hormússundi sem er mikilvæg flutningaleið, meðal annars með olíu.„Bandaríkin hafa verið upplýst um það af flestum „bandamönnum“ í NATO að þeir vilji ekki blanda sér í hernaðaraðgerðina okkar gegn hryðjuverkastjórninni í Íran, í Mið-Austurlöndum,“ sagði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag.Trump bætti við að vegna þess hversu vel hernaðurinn í Íran hafi gengið hvorki þurfi né vilji Bandaríkin aðstoð NATO-ríkja. Þá skrifar hann í hástöfum að Bandaríkin hafi í raun aldrei þurft á neinni slík