Allir vegir til og frá Fjallabyggð voru lokaðir í morgun og þangað til síðdegis í dag. Íbúar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar voru því innlyksa framan af degi. Vegna snjóflóðahættu ríkir óvissustig á vegunum.Siglufjarðarvegur opnaði um klukkan þrjú en auk þess verður reynt að opna Ólafsfjarðarmúla fljótlega. Þar á hins vegar að loka aftur í kvöld vegna snjókomubakka sem von er á um klukkan átta í kvöld.Páll Ágúst Þórarinsson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni, segir enn mögulegt að snjóflóð falli úr þekktum farvegum á svæðinu.„Þetta gengur svona aðeins niður hérna í kvöld en svo kemur aftur snjókomubakki yfir norðanvert landið kannski svona um sjö, átta, níu í kvöld og getur bætt aðeins í sem varir fram undir morgun“.Að sögn Páls eru lokanirnar gerðar með öryggissjónarmið að leiðarljósi. Mikilvæ