Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

SAS fellir niður flugferðir vegna hækkandi eldsneytisverðs

Flugfélagið SAS hefur aflýst nokkur hundruð flugferðum í vikunni því eldsneytisverð hefur hækkað. Flestar flugferðirnar stóð til að fara innanlands í Noregi. Íranar hafa lokað siglingaleiðinni um Hormússund eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels. Sú leið er mikilvæg fyrir útflutning olíu og þar um hefur fimmtungur olíu heimsins verið fluttur síðustu ár. Það er víðar en hjá SAS sem hækkandi olíuverð hefur haft áhrif. Nokkur flugfélög, svo sem Air France-KLM, Air India og Qantas hafa hækkað miðaverð. Þá hefur fjöldi flugfélaga aflýst ferðum til Mið-Austurlanda í ljósi þess hversu ótryggt ástandið þar er. Flugvélar SAS.EPA / JOHAN NILSSON
SAS fellir niður flugferðir vegna hækkandi eldsneytisverðs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta