Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Motzfeldt segir skilið við Siumut

Vivian Motzfeldt, sem gegnt hefur embætti utanríkisráðherra Grænlands, hefur ákveðið að segja skilið við stjórnmálaflokkinn Siumut. Það gerir hún eftir að flokkurinn sagði sig frá grænlensku landsstjórninni fyrir helgi en við það missti hún sæti sitt sem utanríkisráðherra. Motzfeldt var fremst í flokki í viðbrögðum við ásælni Donalds Trump Bandaríkjaforseta í Grænland.Í samtali við grænlenska blaðið Sermitsiaq segir Motzfeldt flokkinn hafa útilokað sjálfan sig frá pólitískum völdum á Grænlandi. Flokksforystan hafi þannig ákveðið að starf Motzfeldt innan ríkisstjórnarinnar hafi verið ónauðsynlegt.„Ég er í stjórnmálum til að hafa áhrif og gefa af mér til samfélagsins,“ segir Motzfeldt við Sermitsiaq. Hún sjái því ekki tilgang með því að fylgja Siumut að málum.Hún sé í stjórnmálum til að hafa
Motzfeldt segir skilið við Siumut

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta