Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á fimm ökutæki undanfarið vegna gruns um tollalagabrot og skjalafals. Þetta staðfestir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, og segir að rannsókn hafi staðið í nokkrar vikur. FLUTTIR INN SEM TJÓNAÐIR EÐA ÆTLAÐIR Í VARAHLUTI Rannsóknin beinist að því að bílar hafi verið fluttir til landsins undir röngum formerkjum, sem tjónaðir eða ætlaðir í varahluti. Samkvæmt heimildum fréttastofu er áætlað að bílarnir hafi í einhverjum tilfellum verið teknir í sundur áður en þeir voru fluttir til landsins og því ekki tollafgreiddir á réttan hátt. Þeir hafi svo verið settir saman og þeir seldir. EIGENDUR EKKI ENDILEGA MEÐVITAÐIR UM SÖGU BÍLSINS Heimildir fréttastofu herma að í einhverjum tilfellum hafi eigendur ökutækj