Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það hafa angrað sig í umræðunni um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu að minni hlutinn á Alþingi láti eins og þjóðin viti ekki sínu viti. Aðlögun að regluverki Evrópusambandsins sé hluti af daglegu lífi þjóðar og þings og ekkert myndi breytast í þeim efnum með áframhaldandi aðildarviðræðum.