Afkomendur Patrice Lumumbas, fyrsta forsætisráðherra Kongó eftir að landið fékk sjálfstæði frá Belgíu, fögnuðu í dag niðurstöðu dómstóls í Brussel. Dómstóllinn ákvað að rétta ætti yfir Etienne Davignon. Hann er í dag 93 ára gamall eftirlaunaþegi en 1961 var hann lágt settur embættismaður í belgísku utanríkisþjónustunni. Hann er sakaður um að hafa átt þátt í því að Lumumba var tekinn höndum, hann pyntaður og að lokum drepinn.Lumumba átti stóran þátt í umbreytingu Kongó úr belgískri nýlendu í sjálfstætt ríki. Hann naut þess þó ekki lengi. Belgar og Bandaríkjamenn voru ósáttir við framgöngu hans og honum var steypt af stóli nokkrum mánuðum eftir að lýðveldi var lýst yfir.Davignon er sakaður um að hafa átt þátt í því að Lumumba var tekinn höndum og haldið við illan aðbúnað. Þar áttu belgískir