Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Skipa stýrihóp til að bæta þjónustu við börn með vímuefnavanda

Þjónusta við börn með vímuefnavanda er að mörgu leyti brotakennd og tryggja þarf að þau lendi ekki milli kerfa. Þetta kemur fram í tillögum starfshóps forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda. Þær voru kynntar á fundi ríkisstjórnar í dag.Starfshópnum var falið að rýna stöðu þjónustu við börn með vímuefnavanda og gera tillögur að úrbótum. Ríkisstjórnin hefur samþykkt að skipa stýrihóp til að fylgja eftir tillögum starfshópsins.Niðurstaða hópsins er meðal annars sú að þrátt fyrir að ýmis úrræði séu til staðar sé þjónustan að mörgu leyti brotakennd eins og hún birtist börnum og fjölskyldum þeirra. Ábyrgðarskipting milli kerfa sé óskýr, samhæfing barnaverndar og heilbrigðisþjónustu sé takmörkuð og lítið sé um úrræði fyrir börn með samsettan vanda.Starfshópurinn telur að
Skipa stýrihóp til að bæta þjónustu við börn með vímuefnavanda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta