Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst leggja til að þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við ESB verði frestað fram til 17. október. Til stendur að hún fari fram þann 29. ágúst.„Markmið þess er að tryggja viðunandi umræður og kynningu um jafnmikilvæg mál og hér um ræðir, bæði innan þings og utan,“ sagði Guðrún í ræðu sinni á Alþingi í gær. Hún taldi að meiri tíma þyrfti til þess að afgreiða málið í þinginu.Ásamt því ætlar hún einnig að leggja fram þá breytingartillögu að spurningunni sem lögð verður fyrir þjóðina verði breytt. „Spurningin sem lögð er fyrir kjósendur verður að lýsa stöðu málsins í raun og veru. Annars er spurningin villandi og óskýr og niðurstaða kosninganna ómarktæk,“ sagði Guðrún.Hið þriðja sem Guðrún hyggst leggja til er að utanríkis