Louis Theroux tæklar Karlahvelið (e. the Manosphere) í nýjustu heimildarmynd sinni en það er samansafn áhrifavalda, vefsíðna og umræðuhópa sem boða róttæka karlmennsku og kvenfjandsamleg viðhorf. Theroux ræðir þar við menn sem hafa hagnast á slíku en á einum tímapunkti í myndinni bregður fyrir tveimur ungum íslenskum drengjum sem eru aðdáendur eins viðmælandans.