Á meðan innlendir verðbréfasjóðir hafa flestir hverjir minnkað verulega stöðu sína í Alvotech undanfarna mánuði og misseri hafa lífeyrissjóðir beðið af sér dýfuna sem hefur orðið á hlutabréfaverði líftæknilyfjafélagsins. Eignarhlutur helstu lífeyrissjóða í Alvotech hélst að mestu óbreyttur í fyrra þegar gengi bréfa félagsins féll um meira en sextíu prósent.