Til skoðunar er að hefja gjaldtöku á ný við Hvalfjarðargöng og taka upp veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi til að fjármagna innviðafélag sem ríkisstjórnin ætlar að koma á laggirnar.Þetta kemur fram í greinargerð frumvarps fjármála- og efnahagsráðherra sem útbýtt var á Alþingi í gær.Innviðafélaginu er ætlað að standa straum af uppbyggingu meiriháttar samgönguinnviða og eru Ölfusárbrú, Fljótagöng og Sundabraut sérstaklega nefnd í greinargerð frumvarpsins.Gert er ráð fyrir því að við stofnun félagsins verði allt hlutafé í eigu ríkissjóðs en opnað er á það í frumvarpinu að fjárfestar geti keypt sig inn í það seinna meir. Ríkissjóður muni þó alltaf eiga ráðandi hlut, annað hvort að meirihluta eða þriðjungshluta með neitunarvaldi. Er horft til þess að fagfjárfestar með viðeigandi þekkin