Heildarkvótinn á vertíðinni var rúm 197 þúsund tonn og þar af komu tæp 151 þúsund tonn í hlut Íslands þegar búið var að klípa af þau tæp 47 þúsund tonn sem nágrannar okkar á Grænlandi og í Færeyjum mega veiða samkvæmt samningum þar um. „HEILT YFIR HEFUR ÞETTA GENGIÐ ÓTRÚLEGA VEL“ „Loðnuvertíð er auðvitað háð því hvernig loðnan kemur upp að landinu og veðri og vindum, hvenær gefst að nýta þetta. Og ég held að það hafi nú flest gengið okkur í haginn á þessari vertíð,“ segir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. „Það er búið að vera hagstætt veðurfar, það hefur verið gríðarlega mikið af loðnu á ferðinni, hún hefur reyndar komið aðeins í ákveðnum gusum inn og verið að bæta í þetta. Svo kemur vestanganga fyrir vestan þannig að heilt yfir