Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vara við hungri dragist átök á langinn

45 milljónir manna gætu þjáðst af hungri í Mið-Austurlöndum dragist átök þar út júní, varaði aðstoðarframkvæmdastjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, Carl Skau, við í dag. Fólk eigi ekki eftir að hafa efni á að kaupa sér mat vegna verðhækkana. Dragist átök á langinn verði hungur það útbreitt að annað eins hafi ekki sést áður. Þegar fái 319 milljónir manna ekki nóg að borða.Þá sagði aðstoðarframkvæmdastjórinn að afleiðinga átakanna í Mið-Austurlöndum eigi eftir að gæta í starfsemi Matvælaáætlunarinnar því olíuverð hafi hækkað mikið og siglingaleiðir séu orðnar lengri.Ein milljón manna í Líbanon hefur lagt á flótta undan árása Ísraela, samkvæmt yfirvöldum. Árásirnar hafa staðið síðan 28. febrúar.EPA / WAEL HAMZEH
Vara við hungri dragist átök á langinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta