Trausti Ólafsson skrifar:Fyrsti þeldökki maðurinn sem ég sá var klæddur í bláan samfesting. Hann var með stóran strákúst í höndunum og sópaði með honum rusl af stéttum fyrir utan Waterloo-brautarstöðina í London þaðan sem ég tók lest til Portsmouth í þessari minni fyrstu ferð til útlanda. Það sem vakti mesta athygli mína í fari þessa svarta manns var fjaðurmýktin í líkama hans þar sem hann sinnti starfi sem flestir hvítir á hörund hefðu talið fyrir neðan sína virðingu.Ég rifja þessa minningu upp hér vegna þess að í sýninguni Gæðablóð er drepið á spurninguna: Hvenær sást þú í fyrsta sinn svarta manneskju? – og sagt frá býsna gróteskum en ofurhlægilegum svörum við henni.Í Gæðablóði koma fram þrír íslenskir karlmenn sem ekki eru skjannahvítir á hörund og sýningin fjallar um þann veruleika sem