Rýma þurfti Reit 9 í Skutulsfirði þegar snjóflóð féll í Seljalandshlíð í morgun. Á reitnum er atvinnuhúsnæði sem rýma þurfti um helgina, en þeirri rýmingu hafði verið aflétt þegar rýma þurfti á ný.Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Norðurlandi og á norðanverðum Vestfjörðum. Búið er að opna veginn um Súðavíkurhlíð en lokað er um Flateyrarveg vegna snjóflóðahættu.Dynjandisheiði verður ekki opnuð í dag og ófært er á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Gemlufallsheiði og norður í Árneshrepp. Ólíklegt er að hægt verði að opna veginn um Ólafsfjarðarmúla í dag en skoða á hvort hægt verði að opna Siglufjarðarveg. VEÐURHRINUNNI LÝKUR VONANDI Á MORGUN Þrátt fyrir að óvissustig sé í gildi segir Sveinn Brynjólfsson, sérfræðingur á snjóflóðavakt Veðurstofunnar, að byrjað sé að sjá fyri