Umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið lauk seint á ellefta tímanum í gærkvöld. Formaður utanríkismálanefndar stefnir á að málið gangi til síðari umræðu eftir sveitarstjórnarkosningar í maí.Umræðan stóð yfir í rúmlega 21 klukkustund. Til samanburðar stóð fyrri umræða við þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu árið 2009 yfir í 10 klukkustundir. Málið fer nú til utanríkismálanefndar áður en það kemur til síðari umræðu.„Við ætlum að taka okkur tíma fram að páskum til að eiga fundi með ráðherra og sérfræðingum ráðuneytisins. Síðan tekur við hefðbundið umsagnarferli og í kjölfarið eftir páska taka við stífar gestakomur og svo reikna ég með að tíminn í maí fari í að nefndin ráði ráðum sínum og afgreiði málið frá sér,”