Bæjarráð Akureyar samþykkti á fundi sínum 12. mars að ganga til samninga við fornbókabúðina Svartar bækur um leigu á Laxdalshúsi.Laxdalshús er elsta hús Akureyrarbæjar og stendur við Hafnarstræti 11. Húsið var byggt árið 1795 og var upphaflega reist sem íbúðarhús en hefur gegnt allskyns hlutverkum frá byggingu þess m.a. sem sýningarhús, bókasafn og veitingastaður.Nú virðist sem Laxdalshús fái enn eitt hlutverkið.Það eru hjónin Stu og Ren Gates, sem áður ráku Fornbókabúðina Fróða í Listagilinu á Akureyri, sem reka nú Fornbókabúðina Svartar bækur sem hefur verið til húsa í miðbænum á Akureyri undanfarna mánuði og hyggja nú á flutning í Laxdalshús.Alls bárust þrjú tilboð til bæjarins um leigu á Laxdalshúsi frá Saga Travel, Serenu Pedrana og áðurnefndum Svörtum bókum en húsið er leigt til næs