Einni hæð Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit hefur verið lokað vegna myglu sem greinst hefur í húsnæðinu. Enn er unnið að rannsóknum og því óvíst hvort að loka þurfi stærri hluta spítalans eða draga úr þjónustu.Sýnatökur og rannsóknir á þeim hafa leitt í ljós að mesta vandann vegna myglu er að finna á jarðhæðum hússins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Sjúkrahúss Akureyrar, Kristnesspítali er hluti af starfsemi þess. Þar segir að unnið sé eins hratt og örugglega og hægt sé til að fá heildarsýn á stöðu húsnæðisins svo hægt sé að ákveða framhaldið.„Einni hæð hefur verið lokað vegna þessa og þjónusta flutt annað. Enn sem komið er hefur ekki verið tekin ákvörðun um að ráðist verði í frekari lokanir eða að draga úr þjónustu vegna þessa. Hins vegar hefur starfsfólk þurft að sýna mikla útsjón