Öllu fleiri eru hlynnt en andvíg forgangsröðun í samgönguáætlun, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. 44,3 prósent segjast hlynnt forgangsröðuninni en 33,6 prósent andvíg. 24,2 prósent velja valkostinn í meðallagi.Mikinn mun er að sjá á afstöðu fólks eftir búsetu. Mestur er stuðningurinn við forgangsröðunina á höfuðborgarsvæðinu þar sem rétt 50 prósent eru hlynnt henni. Fleiri eru hlynnt en andvíg á Norðurlandi en á Vesturlandi, Vestfjörðum, Suðurlandi og Reykjanesi eru aðeins fleiri andvígir en hlynntir.Mest er andstaðan á Austurlandi þar sem fólk hafði gert ráð fyrir að Fjarðaheiðargöng yrðu næst á dagskrá út frá síðustu samgönguáætlun sem Alþingi samþykkti. Þar eru 54,7 prósent andvíg forgangsröðuninni en 26,9 prósent hlynnt.Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu á netinu. Þjóðgáttin